[index]
Fyrra bréf Páls til Korintumanna 13
Kærleikurinn mestur
1 Þótt ég talaði tungum
manna og engla,
en hefði ekki kærleika,
væri ég
hljómandi málmur eða hvellandi bjalla.
2 Og þótt
ég hefði spádómsgáfu
og vissi alla leyndardóma
og ætti alla þekking,
og þótt ég hefði
svo takmarkalausa trú, að færa mætti fjöll úr
stað,
en hefði ekki kærleika,
væri ég ekki
neitt.
3 Og þótt ég deildi út öllum eigum
mínum,
og þótt ég framseldi líkama minn,
til þess að verða brenndur,
en hefði ekki kærleika,
væri ég engu bættari.
4 Kærleikurinn er
langlyndur, hann er góðviljaður.
Kærleikurinn öfundar
ekki.
Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp.
5 Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki
síns eigin,
hann reiðist ekki, er ekki langrækinn.
6 Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni, en samgleðst
sannleikanum.
7 Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar
allt, umber allt.
8 Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi.
En spádómsgáfur, þær munu líða
undir lok,
og tungur, þær munu þagna, og þekking,
hún mun líða undir lok.
9 Því að þekking
vor er í molum og spádómur vor er í molum.
10
En þegar hið fullkomna kemur, þá líður það
undir lok, sem
er í molum.
11 Þegar ég var barn,
talaði ég eins og barn,
hugsaði eins og barn og ályktaði
eins og barn.
En þegar ég var orðinn fulltíða
maður, lagði ég niður barnaskapinn.
12 Nú sjáum
vér svo sem í skuggsjá, í ráðgátu,
en þá munum vér sjá augliti til auglitis.
Nú er þekking mín í molum,
en þá
mun ég gjörþekkja, eins og ég er sjálfur gjörþekktur
orðinn.
13 En nú varir trú, von og kærleikur,
þetta þrennt,
en þeirra er kærleikurinn mestur.
[index]